Í júlíeintaki 1914 má glögglega sjá að allar skrifstofur Eimskips eru í sumarskapi. Fjallgönguæði hefur ekki aðeins gripið Íslendinga heljartaki, heldur eru menn og konur um allan heim að þyrpast á fjöll, og hægt er að lesa þrjár slíkar greinar í eintakinu.
Guðmundur Nikulásson, nýráðinn Framkvæmdastjóri Eimskips innanlands, fer yfir starfsemina á Íslandi og við heiðrum Wolfgang Werk í liðnum Fólk í fókus.
Við vonum að ykkur líki þetta eintak af veftímariti Eimskips 1914
Bandaríkjamenn fagna þjóðhátíðardegi sínum þann 4. júlí, þegar undirritun sjálfstæðisyfirlýsingar þeirra er fagnað. Innfæddir fagna gjarnan sjálfstæði sínu frá Bretlandi með flugeldasýningum, skrúðgöngum, grillveislum, lautarferðum, tónleikum og öðrum opinberum og einkaveislum.
Í Norfolk í Virginiu var 33. Hafnarhátíðin haldin í ár, en það er stæsta hátíðin af því tagi á þessu svæði. Risafley frá öllum heimshonum komu til borgarinnar af þessu tilefni, á nálægt hálfri milljón gesta kom saman á hafnarsvæðinu og nutu dagsins og glæsilegra skipanna.
1914 er fréttabréf Eimskipafélags Íslands, gefið út rafrænt að jafnaði þriðja hvern mánuð.
Nafn fréttabréfsins vísar til stofnárs félagsins, en nú í ár eru liðin 95 ár frá stofnun Eimskips.
Kynningar- og markaðsdeild ber ábyrgð á útgáfunni, og eru allar hugmyndir um efni þess velkomnar. Sendið póst á ritstjórn með því að smella hér.
Ungir jafnt sem aldnir Íslendingar hafa flykkst á fjöll í sumar, og þó nokkrir starfsmenn Eimskips reynt við sjálfan hæsta tind Íslands, Hvannadalshnjúk (2110 metrar).
Í lok maí fóru fjórir meðlimir í óopinbera félagskapnum EEMM (Eimskip’s Employees club of Master Mariners) í ferð á tindinn. Þessir kappar eru Nikulás Halldórsson skipstjóri á Goðafossi, Dagþór Haraldsson (EXP), Birgir Bachmann (PRO) og Jóhann Steinarsson (EIO). Samanlögð starfsreynsla þeirra hjá Eimskip eru heil 130 ár. Jóhann telst barnið í hópnum, en hann átti einmitt 15 ára starfsafmæli hjá Eimskip þann 1. júní.
Ferðin var farin á vegum Ferðafélags Íslands og alls lögðu 80 manns af stað. Veður var afleitt þegar að ofar kom, snjókoma og rok og færðin sjálf afar slæm. Í 1.800 metra hæð voru nokkrir orðnir uppgefnir og fararstjórinn safnaði þeim á eina línu, og sendi til baka.
Aðrir úr hópnum náðu alla leið á toppinn, en margir aðrir hópar gerðu það ekki. Hópur sem gisti á sama stað og Eimskips hópurinn gafst til dæmis upp í 1.974 metra hæð.
Ætlunin var að taka góða mynd á toppnum með gamla félagsfána Eimskips, en vegna kulda neitaði fararstjórinn að taka fleiri myndir, enda ávísun á kal að vera berhentur að taka myndir. Kuldinn var það mikill að súkkulaðið sem Birgir Bachmann gaf okkur, bráðnaði ekki í munni, heldur varð að gleypa það í heilum bitum!
Ferðin á Hvannadalshnjúk tók alls 13 klukkustundir.

Fjallaferðir í NoregiStarfsmenn Eimskips í Noregi sækja stíft til fjalla eins og kollegar þeirra á Íslandi og víðar. Á milli skrifstofa þar í landi var stofnað til keppni um hver myndi vera duglegastir að ganga á fjöll og hver væri duglegasti einstaklingurinn í öllum hópnum. Skipulagningarnefnd keppninnar valdi 10 toppa fyrir hverja skrifstofu til að ganga á, og svo er talið hvaða skrifstofa skilar sér oftast á leiðarenda miðað við fjölda starfsmanna. Hörð keppni hefur verið á milli skrifstofanna í Tromsö, Sortland, Aalesund og Bergen, en skrifstofan í Fredrikstad fékk undanþágu til að hjóla í stað göngu, þar sem ekki er mikið um toppa þar í kring. Eimskip í Sortland, með fjallagarpana Elin Pettersen í broddi fylkingar, var þegar síðast fréttist að stinga af í keppninni og var með helmingi fleiri stig en næsta skrifstofa. Elin og kollegi hennar Knut Heen Hanssen (sem fær hverja hjólaferð sem hann fer í yfir 30 kílómetra!) leiða einstaklingskeppnina með fleiri en 40 ferðir að baki hvort. Keppninn stendur frá 1. maí til 30. september næstkomandi, og við bíðum spennt eftir að sjá hvernig hún fer! (Meðfylgjandi mynd tók Håkon Iversen á einu fjallanna) ![]() | Syngjandi viðskiptiNúna í júlí er fyrsta bókun Eimskips á Ítalíu á leiðinni til Rússlands, þegar tveir 40 feta gámar fara frá einu stærsta efnafræðifyrirtæki Ítalíu norður á bóginn. Sagan á bak við þessa bókun er nokkuð óvenjuleg, og eitthvað sem maður heyrir af á hverjum degi í millilandaflutningabransanum. Franco og Ilya fóru að ræða málin, og náðu vel saman. Út frá því þróuðust viðskiptahugmyndir á milli Ítalíu og Rússlands sem hafa stöðugt aukist í þá átt að nú er þessi fyrsti samningur orðinn að veruleika! Við getum með sanni sagt að í þessu tilviki hafi bókun fæðst út frá sönglagi, og vonir standa til að þessi fyrsta sending geti orðið byrjunin að góðum viðskiptum. ![]() | Fjallaferðir í KínaTil að styrkja samstöðu starfsmanna og ná þeim betur saman, hafa starfsmenn Eimskips í Kína farið á fjöll í nágrenni borgarinnar Qingdao þar sem Eimskip rekur frystigeymslu. Fyrir stuttu síðan lá leið þeirra á hið margfræga Laoshan fjall, sem á ríkar rætur trúmálum Kínverja. Hvorki gríðarlegur hiti né þreyta dró af mannskapnum, og hélt hann hægt en örugglega upp þetta tignarlega 1.132 metra háa fjall. Þegar gengið hafði verið í tvær klukkustundir blasti uppskera erfiðisins við þegar glæsilegt útsýnið blasti við af toppnum. Allir voru sammála um að gangan sjálf og endapunkturinn á henni hefði verið vel þess virði. Hugmyndin um manninn ofar öllu á sér laga hefð í kínverskri menningu, og var það mál manna að þessi myndu taka með sér góðar minningar úr þessari ferð og nýta þær til að vinna enn betur að hagmunum Eimskips í skrifstofunni í Qingdao. ![]() |

Þann 12. júlí síðastliðinn heimsótti starfsfólk Eimskips í Bretlandi Fiskmarkað Grimsby-borgar. Flestir voru mættir á staðinni um 06:45 og klóruðu sér í kollinum yfir því hvað þau væru búin að koma sér út í.
Forstjóri markaðsins tók á móti hópnum í stjórnarherberginu, og afhenti einkennisbúnað síldarspekúlanta, höfuðföt, sloppa og stígvél. Fljótlega var haldið í fjörið og niður á markaðsgólfið. Að þessu sinni voru um 3.000 50 kílóa kassar á uppboði, þar sem yfir 95% innihaldsins var af Íslandsmiðum. Rúmur helmingurinn var ýsa og fimmtungur þorskur. Starfsmennirnir kynntu sér allar tegundir fiskjar, og fengu meðal annars að kynnast fingrafari ýsunnar.
Þegar markaðurinn var komin á fullt voru þrjú aðskilin markaðssvæði að störfum og fiskikörum hent til og frá um leið og búið var að festa viðskiptin. Fyrir óþjálfað auga virtist þetta heldur tilviljanakennt!
Endapunkturinn var svo hinn sígildi morgunmatur Grimsby-búa, sem samanstendur af reyktri ýsu og linsoðnum eggjum, sem var ljúffengari en margur átti von á.
Heimsókninni var gefinn mjög góður rómur, frábær og óvenjuleg byrjun á vinnudeginum, þó svo að einhverjir á skrifstofunni kvörtuðu yfir því að lyktin hefði fylgt leiðangursmönnum full lengi inn í daginn!


Paul Olai er bara venjulegur Norðmaður sem elskar að vera úti í náttúrunni. Paul þessi svaf í bakgarði skrifstofu Eimskips í Fredrikstad eina nótt í maí, og fékk sér nokkrar brauðsneiðar í kaffistofunni þegar hann vaknaði um morguninn.
Paul er eins manns leiðangur um heiminn, sem ferðast í samstarfi við norska sjónvarpið og skrifar bækur um ferðir sínar.
Í þetta skiptið ferðast hann bæði með kajakinn sinn og hjólið. Fyrsti hluti leiðarinnar lá til Færeyja í mánuð og svo ætlar hann að vera á Íslandi í þrjá mánuði.
Eimskip gékk í lið með Paul og flytur farangur hans frítt á milli landshorna. Hægt er að lesa meira um ævintýri þessa Norðmanns á síðunni www.paulsplanet.no. Samkvæmt upplýsingum þar er hann nýkominn til Íslands – gleymið ekki að veifa honum ef þið rekist á hann, hvar í heiminum sem það verður!






Fjallaferðir í Noregi